Terms of service
Skilmálar
Skilmálar þessir gilda um allar pantanir hjá fortunainvest.is.
Fortuna Invest ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, sé vara ekki til á lager eða hafi rangar verðupplýsingar verið settar fram. Fortuna Invest ehf. áskilur sér einnig rétt til að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vöru fyrirvaralaust.
1. Upplýsingar um söluaðila
Fortuna Invest ehf.
kt. 620721-1230
vsk. 146975
Sunnusmári 22
s. 856-7771
2. Vörur og þjónusta
Fortuna Invest býður upp á stafræna fræðslu og efni um fjárfestingar og fjármál, bæði í formi bókar, rafbóka, námskeiða og fyrirlestra. Öll verð eru tilgreind með VSK (ef við á) og í íslenskum krónum (ISK), nema annað sé sérstaklega tekið fram.
3. Lagalegur grundvöllur
Allur aðgangur að vefsíðu og viðskiptum við Fortuna Invest lúta íslenskum lögum. Mál sem kunna að rísa vegna viðskipta skulu rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
4. Skila- og afbókunarskilmálar
Viðskiptavinir hafa rétt á að hætta við kaup á stafrænum vörum innan 7 daga frá kaupum, að því gefnu að efnið hafi ekki verið hlaðið niður eða opnað. Hægt er að óska eftir endurgreiðslu með því að hafa samband á netfangið fortuna@fortunainvest.is. Ef efni hefur verið opnað eða notað, telst kaup staðfest og ekki hægt að óska eftir endurgreiðslu.
5. Afhending
Allar stafrænar vörur eru afhentar með tölvupósti eða í gegnum aðgangshlekk sem birtist eftir kaup. Ef afhending mistekst skal hafa samband sem fyrst í gegnum tölvupóst á netfangið fortuna@fortunainvet.is. Enginn sendingarkostnaður bætist við stafrænar vörur.
Við kaup á netnámskeiði er það aðgengilegt kaupanda um leið og greiðsla hefur farið í gegn, námskeiðið er aðgengilegt kaupanda í ótamarkaðan tíma.
Við kaup á bók, er bókin afhent í gegnum Dropp. Hægt er að fá vörur afhendar á næsta afgreiðslustað Dropp, eða með heimsendingu á vegum Dropp sem gildir á höfuðborgarsvæðinu og suðvesturhorninu.
6. Persónuvernd
Við virðum rétt þinn til friðhelgi. Upplýsingar sem þú gefur upp eru eingöngu notaðar til að afgreiða pöntun og senda viðeigandi upplýsingar.
7. Greiðsluferli
Greiðslur fara fram í gegnum örugga greiðslugátt og aðeins þegar viðskiptavinur hefur samþykkt skilmála með því að haka við til staðfestingar áður en greiðsla fer fram. Ekki er hægt að ljúka kaupum nema samþykki skilmála hafi átt sér stað.
8. Endurkröfur
Viðskiptavinir eiga rétt á að óska eftir endurkröfu hjá sínum kortaútgefanda. Fortuna Invest mun leitast við að veita skjalfestan stuðning til að leysa mál, t.d. með staðfestingum á afhendingu og samþykki skilmála. Við hvetjum viðskiptavini til að hafa samband við okkur áður en endurkrafa er lögð fram, svo unnt sé að leysa málið með samkomulagi.
9. Verð
Athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.
10. Annað
Við áskiljum okkur rétt til að breyta skilmálum án fyrirvara. Nýir skilmálar taka gildi við birtingu á heimasíðu. Við hvetjum notendur til að kynna sér skilmálana.
Ef þú hefur einhverjar spurningar eða athugasemdir, vinsamlegast hafðu samband í gegnum netfangið fortuna@fortunainvest.is.